Fréttir


21.3.2024

Staðfesting á breytingu á aðalskipulagi Hörgársveitar vegna Dalvíkurlínu 2

Skipulagsstofnun staðfesti 20. mars 2024 breytingu á Aðalskipulagi Hörgársveitar 2012-2024 sem samþykkt var í sveitarstjórn 25. janúar 2024.

Í breytingunni felst lagning 66 kV jarðstrengs (Dalvíkurlínu 2) á um 23 km kafla innan sveitarfélagsins frá sveitarfélagamörkum við Akureyri að sveitarfélagamörkum við Dalvíkurbyggð. Einnig er gerð breyting á reiðleiðum, göngu- og hjólastígakerfi sveitafélagsins.

Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga.

Hægt verður að nálgast aðalskipulagsbreytinguna á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og í Skipulagsgátt þegar breytingin hefur öðlast gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda.